Lítil hækkun íbúðaverðs og óvenju lítil áhrif útsöluloka eru stærstu ástæður þess að vísitala neysluverðs lækkaði minna í ágúst en vænta mátti.
Um þetta er skrifað í Morgunkorni Íslandsbanka.
Hægari hækkun íbúðaverðs og áhrif aukinnar samkeppni á verð innfluttrar vöru gætu orðið til þess að verðbólga haldist undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands út þetta ár.