Athyglisverðar tölur um fylgi flokkanna birtust í 10-fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi. Þær sýndu greinilega, að enda þótt fylgi Pírata sé mest í öllum aldursflokkum nema þeim elsta, er það fyrst og fremst fylgishrun gömlu flokkanna hjá yngri kjósendum, sem ræður því hvernig meginlínurnar leggjast.
Þetta skrifar þjóðmálarýnirinn Ómar Ragnarsson á bloggsvæði sitt í dag - og bætir við að það hefði einhvern tíma þótt óhugsandi að aðeins rúm 10% kjósenda undir þrítugu aðhylltist stefnu Sjálfstæðisflokksins og enn færri í þessum aldursflokki styddi Samfylkinguna.
\"Að mikill meirihluti kjósenda í svona fjölmennum hópi styddi nýtt stjórnmálaafl á borð við Pírata hefði þótt enn meira óhugsandi,\" skrifar Ómar ennfremur og segir svo: \"Innan við þriðjungs fylgi ríkisstjórnarflokka er fáheyrt og enn fáheyrðara er innan við 20% fylgi við þá hjá fólki innan við þrítugt.\"
Hann heldur áfram: \"Píratafylgið virðist hliðstætt því mikla fylgi sem Besti flokkurinn komst í í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2010. Nú virðist fylgi arftaka þess flokks á landsvísu gufað upp, að minnsta kosti í bili. Það gerðist hins vegar ekki fyrr en annað hliðstætt nýtt stjórnmálafl kom fram. Sem bendir til svipaðs fyrirbæris og hjá kúnum í sveitinni minni í gamla daga, sem sýndist grasið oft grænna hinum megin við girðinguna,\" skrifar Ómar Ragnarsson í dag.