Undibúa málshöfðun vegna borgunar

Sparisjóður Austurlands seldi í lok árs 2014 hlutabréf í kortafyrirtækinu Borgun. Bréfin voru seld til félags í eigu stjórnenda Borgunar sem heitir BPS ehf. Sparisjóðurinn átti 1,4 millj. hluti sem var 0,32% af heildar hlutafé Borgunar. Bréfin voru seld á genginu 15,56 fyrir 22,2 milljónir króna og var bókfærður söluhagnaður um 15 milljónir króna.

\"Ef þær upplýsingar sem fram hafa komið í fjölmiðlum undanfarið um virði Borgunar eru réttar gæti virði hlutar Sparisjóðsins á þessum tíma hafa verið umtalsvert hærri en 22,5 milljónir,\" segir Sparisjóðurinn í tilkynningu til fjölmiðla þar sem jákvæð niðurstaða aðalfundar félagsins er kynnt.

\"Fyrir liggur að Landsbankinn er að undirbúa stefnu vegna sölu sinna bréfa. Stjórn Sparisjóðs Austurlands hefur falið lögfræðingi sjóðsins að skoða sölu bréfanna og meta aðgerðir í framhaldinu,\" segir í tilkynningu frá sparisjóðnum.