Undarleg hegðun sunnlenskra hrossa: átu kannabis

Fyrir nokkrum árum hratt MAST af stað rannsókn vegna undarlegrar hegðunar nokkurra hrossa á Suðurlandi. Hrossin titruðu en höfðu góða lyst og nærðust vel. Fyrirspurn var send til bandarískra dýralækna sem gátu upplýst að hrossin hefðu étið kannabisplöntur.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Þar segir að Katrín Andrésdóttir hafi verið héraðsdýralæknir á Suðurlandi þegar málið kom upp en hún lét af því embætti 2011. Hún staðfesti að þessi grunur hafi komið upp en vildi ekki segja neitt frekar um málið.

Haft er eftir Miu Hellsten, dýralækni, að grunur hafi leikið á að þarna væri nýr taugasjúkdómur á ferðinni. Helstu einkennin hjá hrossunum voru ósamræmdar hreyfingar, titringur og óeðlilegur gangur en þeir voru þó ekki veiklulegir eða með hita. Mia kom að málinu fyrir röð tilviljana en hestarnir voru ekki í eigu viðskiptavina hennar.

Mia setti sig í samband við félag hestadýralækna í Bandaríkjunum, AAEP, og lýsti einkennunum og birti myndband af hestunum á opnum vettvangi félagsins.

„Það komu fram alls kyns tilgátur um taugasjúkdóma. Loks sagði einn að þetta líktist hundi sem hann fékk inn á stofuna hjá sér, og hafði komist í kannabiskökur eigandans. Þegar prófanir voru gerðar á hestunum kom jákvætt út úr kannabisprófinu.“

Prófanir leiddu í ljós að þeir voru undir áhrifum kannabis. Líklegt var talið að þeir hefðu komist í haug þar sem kannabisplöntur voru. Hrossunum varð ekki varanlega meint af þessu að sögn Miu.