Lyfjastofnun veitti 11 þúsund undanþágulyfseðla árið 2014, en undanþágulyfseðlar eru ávísanir lækna á lyf sem ekki hafa markaðsleyfi á Íslandi. Dæmi um slíkt lyf er Armour Thyroid, sem nokkuð hefur verið í fjölmiðlum undanfarið. Armour Thyroid er notað við vanvirkum skjaldkirtli, en fréttir hafa verið um að lyfið sé til sölu á svörtum markaði, í grenningarskyni.
Í svari Lyfjastofnunnar við fyrirspurn frá upplýsingaveitunni spyr.is segir að ef læknir óskar eftir því að ávísa lyfi sem ekki hefur markaðsleyfi geti hann gert það með sérstökum lyfseðli sem Lyfjastofnun verður að samþykkja. Þá kom fram í svari Lyfjastofnunar að undanþágurnar 11.000 voru fyrir notkun á um 300 tegundum af lyfjum. Lyfið Armour Thyroid, var í 8. sæti yfir þau lyf sem oftast var ávísað árið 2014, með undanþágu frá Lyfjastofnun. Sjá má frekari upplýsingar um málið á spyr.is.