Mikil fækkun hefur verið á keyptri aðild í versluninni Costco meðal landsmanna. Samkvæmt könnun MMR sem var gerð í maí kemur fram að í Janúar 2018 voru 71% landsmanna með aðild, á meðan eingöngu 53% sögðust vera með áskrift í ár. Breyting hefur þó verið á hlutfalli þeirra sem ætla að endurnýja aðild sína í Costco. Árið 2018 sögðust 60% ætla að halda áfram að vera meðlimir, en í ár sögðust 78% ætla að endurnýja aðild sína.
Þá kemur einnig fram í könnuninni að 58% íbúa á höfuðborgarsvæðinu sögðust vera meðlimir á meðan 42% fólks sem býr á landsbyggðinni sögðust vera meðlimir.