Umtalaðasta forsíða seinni ára

Tugir kvenna sem saka bandaríska gamanleikarann Bill Cosby um að hafa byrlað sér lyf og nauðgað þeim á eftir eru saman komnir á forsíðu nýjasta tölublaðs New York Magazine sem vakið hefur heimsathygli.

Á forsíðunni sitja 35 konur á stólum af þeim 46 sem hafa sakað Coby um ofveldisverknaðinn, en einn stóll er auður; sagður vera fulltrúi þeirra kvenna sem enn hafa ekki lagt fram kæru á hendur honum.

Mál þetta hefur legið í loftinu um nokkra hríð, eða eftir að fréttir þess efnis láku úr dómsskjölum að Cosby hefði gert dómssátt við eina þessara kvenna og greitt henni bætur gegn því skilyrði að upplýsingar um lyfin sem hann gaf henni kæmist ekki upp á yfirborðið.

Þegar það lá fyrir brasty flóðbylgjan - og snú hafa tugir þessara kvenna stogið fram og sagt leikarann hafa nauðgað sér með sama hætti; gefið þeim nauðgunarlyf og framið svo ódæði sitt.

Flest þessara mála teljast fyrnd, enda eru elstu þeirra frá því fyrir 1970.

Sjálfur hefur Cosby og lögfræðingateymi hans þvertekið fyrir að um nauðgun hafi verið að ræða í þessum tilfellum, lyfjatakan hafi verið samþykkt af konunum, svo og samræðið.

Af svip kvennanna á forsíðu tímaritsins virðist það varla vera raunin.