Umsögn um lán

Gögn segja að viðbótarfjármögnunarþörf Vaðlaheiðarganga hf vegna jarðgangagerðar er 4,7 milljarðar króna. Félagið óskar eftir því að viðbótarfjármögnun Ríkissjóðs vegna verksins verði tryggð. Ríkisábyrgðasjóður (RÁB) hefur veitt um sögn um þessa ósk. Úr því sem komið er telur RÁB að samþykkja ætti þessa beiðni um viðbótarfjármögnun. Þá er hægt að klára göngin og þau þá farið að skila inn tekjum. Nokkuð góðar líkur ættu að vera til þess að innheimta veggjald ganganna til að greiða upp viðbótarfjármögnun þessa og meira til. Tillögur RÁB um hvernig auka megi möguleika á að Ríkissjóður fái sem mest af lánum sínum greitt til baka koma fram í skriflegri umsögn RÁB til stjórnvalda.

rtá

Nánar www.althingi.s  www.ruv.is