Umsögn ferðamálaráðs

Ferðamálaráð hefur skilað umsögn um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2018-2022. Í umsögninni hvetur Ferðamálaráð Alþingi til að taka tillit til þess að áform um hærri virðisaukaskatt muni óhjákvæmilega koma niður á samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar. Ráðið bendir á að í helstu samkeppnislöndunm sem hafa fleiri en eitt þrep virðisaukaskatts sé ferðaþjónustan ávallt í því lægra. Ferðamálaráð telur gagnrýnisvert að ekki skyldi vera haft samráð við atvinnugreinina um þessar skattabreytingarhugmyndir.

Þá bendir Ferðamálaráð á að sveiflur í gengi krónunnar hafi leikið ferðaþjónustuna grátt um nokkurt skeið og launahækkanir komið illa við greinina.

Auk þess segir Ferðamálaráð í umsögn sinni að mikilvægt sé að þegar í stað verði farið í vinnu við að skerpa regluverk og eftirlit með þeim erlendu aðilum sem starfa hér á landi en greiði hér ekki skatta og gjöld til jafns við hérlend fyrirtæki né laun í samræmi við íslenska kjarasamninga. Ráðið bendir á að slík starfsemi skekki samkeppnisstöðu íslensku fyrirtækjanna verulega og auki hættu á skráningu þeirra erlendis verði ekkert að gert.

Formaður Ferðamálaráðs er Unnur Valborg Hilmarsdóttir oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra. Varaformaður er Eva Björk Harðardóttir oddviti sveitarstjórnar Skaftárhrepps og hótelstjóri Hótels Laka. Þær eru skipaðar af ráðherra ferðamála Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.

rtá

Nánar www.althingi.is/altext/erindi/146/146-1148.pdf