Allsherjar- og menntamálanefnd mun leggja til við Alþingi að frumvarpi Silju Daggar Gunnarsdóttur um að banna umskurð drengja verði vísað frá, að því er segir í frétt Fréttablaðsins í dag.
Silja Dögg segir tilganginn með frumvarpinu að verja hagsmuni barna og vill að málið verði unnið áfram í fagráðuneytum. Frumvarpinu var útbýtt á þingi í lok janúar og alls 133 umsagnir hafa um það borist þinginu bæði með og á móti frumvarpinu og fjöldinn allur af bréfum verið sendur þingmönnum. Málið gekk til allsherjar- og menntamálanefndar þann 1. mars og hefur setið þar fast síðan.
Silja Dögg hafði ekki heyrt þessar málalyktir af því er segir í fréttinni og segir í samtali við blaðið að ef nefndin ákveði að vísa málinu til ríkisstjórnar þá geri hún ráð fyrir því að ákveðin skoðun fari fram. „Þá er tilganginum náð,“ segir Silja Dögg.