Loka þurfti hluta Vallahverfisins í Hafnarfirði í gærkvöld og nótt eftir að maður, sem þekktur er af ofbeldisverkum, gekk berserksgang í íbúið í fjölbýlishúsi á staðnum. Hann kvaðst vera vopnaður og hafði í hótunum.
Mikið lið lögreglumanna kom á vettvang og tók nokkurn tíma að tala um fyrir manninum sem fór mikinn innan dyra. Fólk í grennd var beðið um að halda sig innan dyra á meðan á aðgerð lögreglunnar stóð.
Maðurinn lét loks til leiðast í nótt og var leiddur út í handjárnum og gistir nú fangaklefa lögreglunnar.