Umsátrinu í jakarta er lokið

Umsátr­inu í Jakarta, höfuðborg Indó­nes­íu er lokið en árás­ar­menn­irn­ir, sem voru fjór­i, lét­ust þeir all­ir. Tveir þeirra voru skotn­ir til bana, en hinir tveir sprengdu sjálfa sig til bana. Tveir al­menn­ir borg­ar­ar lét­ust í árás­un­um.

Talið er nær fullvíst að hryðju­verka­sam­tök­in Ríki Íslams standi að baki árásunum, en talsmaður rík­is­lög­reglu­stjórans í borginni, Ant­on Charliy­an seg­ir að ekki sé staðfest hverj­ir stóðu á bak við til­ræðið, en að sögn hans gáfu víga­sam­tök­in út viðvör­un á dul­máli þar sem varað er við árás­inni. Þar kemur fram að tón­leik­ar verði haldn­ir í Indó­nes­íu og að fjallað verði um þá í fjöl­miðlum víða um heim. 

For­seti Indó­nes­íu hefur fullyrt að um hryðju­verk sé að ræða. . 

Lög­regl­an í Indó­nes­íu hef­ur komið í veg fyr­ir nokkr­ar hryðju­verka­árás­ir und­an­farn­ar vik­ur og tengj­ast þær all­ar Ríki íslams. Ótt­ast er að hundruð Indó­nesa hafi gengið til liðs við hryðju­verka­sam­tök­in.

Talsmaður lög­regl­unn­ar í Jakarta, Muhammad Iqbal,seg­ir að fimm lög­reglu­menn hafi særst í árás­inni, einn út­lend­ing­ur og fjór­ir al­menn­ir borg­ar­ar. Ann­ar þeirra sem lést í árás­inni var út­lend­ing­ur.