Umsækjendur um vernd

Þeim sem fengið hafa alþjóðlega vernd hér á landi hefur fjölgað ört á undanförnum árum. Framan af voru þetta innan við tíu manns en hefur nú fjölgað hratt. Árið 2016 var 173 flóttamönnum veitt hæli á Íslandi. Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta sinn tölur um umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi á árunum 1997 til 2016. Langflestir umsækjendur voru frá Albaníu og Makedóníu. Flestir sem fá hér dvalarleyfi eru Asíubúar en fast á hæla þeim eru Ameríkubúar. Frá þessu er sagt í frétt frá Hagstofu Íslands.

rtá