Umræða um símasöluna heilbrigðismerki

Forstjóri Kauphallarinnar á Íslandi segir það vera heilbrigðismerki um íslenskt viðpskiptalíf að umræða fari fram um það hvort bjóða eigi út forkaupsrétt að hlutabréfum í fyrirtækjum hér á landi.

Tilefnið er er sala á hlutum Arion banka í Símanum sem aðgengilegir voru útvöldum áður en almennir kaupendur gátu boðið í þá. Mjög hefur verið deilt þennan gjörning, jafnt innan þings sem utan, en á fyrrnefnda staðnum hefur hann verið nefndur verstu nöfnum, svo sem að spilavíti kapítalismans væri aftur komið á kreik eða að dauninn af bankaskítalykt væri aftur farið að leggja yfir landið.

Forstjóri Kauphallarinnar segir af þessu tilefni að það sé alþekkt í útboðum að hlutafé sé ekki selt í einu lagi. Fyrirtæki ættu þó eftir megni að nýta sér markaðinn við útboð. Hann segir umræðuna heilbrigðismerki: \"Það er svo sem alþekkt bæði hérlendis og erlendis að það er staðið að útboðum þannig að hlutafé sé ekki endilega selt allt í einu lagi“ segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar í samtali við fréttavef RÚV í gærkvöld. Oft séu fengnir inn fagfjárfestar eða þekkingarfjármagn sem sé talið geta aukið traust á félaginu. Almennt eigi þó fyrirtæki, að mati kauphallarinnar, að nýta almenn útboð.
 

Hann bætir við í sömu frétt: \"Við í Kauphöllinni teljum að fyrirtæki ættu eftir megni að reyna að koma inn á markaðinn og selja hlutafé með því að nýta markaðinn og útboðin í sem mestum mæli nema það séu sérstakar aðstæður,\" segir Páll, en telur fyrrnefndan gjörning þetta ekki veikja skráningu Símans á markað: \"Það held ég nú ekki. Ég held að það sé heilbrigðismerki að við sjáum umræðu um fyrirkomulag útboða. Það gæti einfaldlega bara á endanum styrkt markaðinn.“