Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, sagði á þingi ASÍ í gær að takist ekki að koma böndum á efstu laun samfélagsins, muni hann styðja kröfu verkalýðshreyfingarinnar um að hátekjuskattur verði settur á hæstu tekjur á Íslandi. Í samtali við fréttastofu sagði Ásmundur Einar að hann hefði rætt þessar hugmyndir innan ríkisstjórnarinnar.
„Það er umræða sem við erum í raun og veru ekki komin af stað með,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. „Það sem við erum að gera er að við erum að horfa á heildarendurskoðun á skattkerfinu og samspili þess við bótakerfið. Markmiðið er annars vegar að auka jöfnuð og huga sérstaklega að lágtekjuhópum og lægri millitekjuhópum. Þessar tillögur eru ekki ennþá komnar fram en það hefur staðið yfir óformlegt samráð við aðila vinnumarkaðarins um þeirra sjónarmið inn í þessa vinnu. Þannig að við eigum eftir að ræða þetta á vettvangi þingsins síðar.“
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/umraeda-um-hatekjuskatt-ekki-hafin