Ummæli um barnamorð valda ólgu

Forseti bæjarstjórnar í Grindavík, Hjálmar Hallgrímsson, D-lista, krefst þess að Siggeir Ævarsson, upplýsingafulltrúi bæjarins, verði ekki viðstaddur fundi sem Hjálmar taki sjálfur þátt í innan bæjarskrifstofunnar. Ástæðan er ummæli sem upplýsingafulltrúinn lét falla á facebook og varða flóttafólk.

 Víkurfrettir.is greina frá þessu. Segja Víkurfréttir að kröfuna hafi forseti bæjarstjórnar sett fram eftir að Siggeir lét þau ummæli falla á Facebook-síðu sinni að fólk sem væri á móti því að taka á móti flóttafólki væri barnamorðingjar. Ummælin hafi Siggeir látið falla í kjölfar þess að allir þrír fulltrúar D-lista í bæjarstjórn, þar á meðal Hjálmar, bókuðu að húsnæðisskortur kæmi í veg fyrir að hægt yrði að taka á móti flóttafólki í Grindavík.

„Ég vil ekki láta stilla mér upp sem barnamorðingja fyrir afstöðu til komu flóttafólks og finnst því ekki við hæfi að hann sitji fundi,“ segir Hjálmar í samtali við Víkurfréttir.

Kemur einnig fram að Siggeir vilji ekki tjá sig að svo stöddu.