Umhverfisráðherra vill banna eyrnapinna

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra vill banna plastvörur á borð við einnota eyrnapinna, diska, hnífapör og rör. Í frétt sem birtist á Vísi segir hann:

„Þetta eru svona þessar algengustu plastvörur sem að eru að finnast á ströndum, niðri við sjó, sem eru að berast út í umhverfið og hafa þannig neikvæð áhrif. Eins og plaströr, diskar og hnífapör, eyrnapinnar og ýmislegt svona úr frauðplasti. Þannig að það er eitt markmiðið að hreinlega banna markaðssetningu þessara vara og síðan setja gjald á ákveðnar aðrar einnota plastvörur.“

 

Í fréttinni segur hann einnig að markmiðið með þessu sé að draga úr sóun og auka endurvinnslu, en hann vill líka skyld fólk til að flokka ruslið sem frá því kemur.

„Mér finnst svona kominn tími til þess að við gerum þetta öll núna þegar árið 2020 er að renna í gang,“ segir Guðmundur.

Guðmundur Ingi vonar að hann geti talað fyrir tveimur frumvörpum sem taka á þessum málum í febrúar og að þau verði orðin að lögum strax næsta sumar, en drögin að þeim eru komin í Samráðsgáttina þar sem hægt er að senda inn umsagnir um þau.