Álfheiður Eymarsdóttir, Ingveldur Sæmundsdóttir og Rósa Björk Brynjólfsdóttir ræða umhverfismál í kosningasjónvarpi Hringbrautar í kvöld.
Lofslagsmál, virkjanir, súrnun hafsins, endurheimt votlendis og fleiri mál koma til umræðu.
Umhverfismálin eru jafnan sögð mest áríðandi mál komandi ára. Þeim verða gerð góð skil í Þjóðbrautarþætti kvöldsins.