Umhverfislausnir á heimsvísu

Í Súrefni – þætti um umhverfismál í kvöld verður rætt við Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóra og einn stofnenda Klappa – Grænna lausna, og Guðnýju Camillu Aradóttur, umhverfisfulltrúa IKEA hér á landi. Þátturinn hefst klukkan 20:00.

Klappir – Grænar lausnir þróar, selur og innleiðir hugbúnað á sviði umhverfismála. Starfsemin er nú þegar orðin umfangsmikil og nær út fyrir landsteinana. Mikið frumkvöðlastarf er að baki stofnun Klappa og voru hlutabréf fyrirtækisins tekin til viðskipta á First North markaði Kauphallarinnar haustið 2017. Hugbúnað­ar­lausnir fyr­ir­tæk­is­ins á sviði umhverf­is­mála er óhætt að segja að séu meðal allra fyrstu upp­lýs­inga­kerfa sinnar teg­undar í heim­in­um.

Linda Blöndal ræðir við Jón Ágúst um fyrirtækið. Hann stofn­aði áður nýsköpunarfyr­ir­tækið Mar­orku og hefur því byggt upp víð­tæka þekkingu á umhverfislausnum um langt árabil.

Sérstaða IKEA

Þegar rætt er um umhverfismál hefur IKEA haft sérstöðu á heimsvísu hvað varðar nýsköpun sem tengist endurnýtingu og sparsemi í alla staði. Á Íslandi hefur verið lögð mikil vinna í að ná utan um umhverfisáhrif fyrirtækisins með það fyrir augum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, minnka urðun á úrgangi, minnka pappírsnotkun og með markvissum hætti notkun á neysluvatni.

Þrátt fyrir 19 prósenta aukningu á heildarmagni úrgangs á milli ára hjá IKEA jókst losun vegna förgunar og meðhöndlunar úrgangs eingöngu um 7 prósent. Ástæðuna má rekja til flokkunarátaks sem ýtt var úr vör árið 2017.

\"\"

Helga María ræðir við Guðnýju Camillu um hvernig IKEA hefur nálgast umhverfismál og hvað framtíðin ber í skauti sér í þeim efnum.