Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI) skrifaði grein í Morgunblaðið. Hún birtist 1.9.sl. Sigurður minnir á að stöðugt starfsaumhverfi skipti sköpum fyrir atvinnulífið á Íslandi til þess að áætlanir fram í tímann fái staðist.
Ein helst áskorun íslenskra stjórnvalda sé því að auka stöðugleika. Sigurður segir mikilvægast að ráðast að rót vandans - miklum raunvaxtamun við útlönd. Ætti að horfa til þess við endurskoðun peningastefnunnar.
Þá þurfa ríkisstjórn og Seðlabanki Íslands að ganga í takt. Ríkisfjármál eiga að vera í takti við hagsveiflurnar þegar sýna þarf aðhald á hagvaxtarskeiði og bæta í þegar hagkerfið dregst saman.