Umferðin: banaslys í öræfum

Erlendur ferðamaður lét lífið og fimm slösuðust í umferðarslysi í Öræfum í dag þegar tveir bílar skullu þar saman á einbreiðri brú yfir Hólá, rétt austan við bæinn Hnappavelli.

Sex farþegar voru í bílunum, fjórir í öðrum og tveir í hinum, allt erlendir ferðamenn.Langar biðraðir mynduðust beggja vegna brúarinnar á meðan á björgunaraðgerðum stóð, en þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt í þeim.

 

Tilkynnt var um slysið um klukkan þrjú í dag og var vegurinn opnaður aftur fyrir umferð skömmu fyrir klukkan sex í kvöld.