Umferðin: snjallsímar mesta hættan

Íslendingar eru vel upp aldir í umferðinni og standa framar öðrum þjóðum í mörgu er varðar öryggi í umferðinni. Þó hafa kannanir sýnt að 15% keyra beltislausir í höfuðborgarsvæðinu.

Af þessum ástæðum réðst Samgöngustofa í auglýsingagerð þar sem stjórnmálamenn voru fengnir til að spenna á sig beltið á sem stystum tíma. Þórhildur Elínardóttir, upplýsingafulltrúi hjá Samgöngustofu, segir að fleiri spenni þó á sig beltin þegar keyrt er um þjóðvegina. Þá hækkar hlutfallið í 95%.

Mesta hættan í umferðinni í dag eru hins vegar snjallsímar. Nú eru þeir ekki lengur aðeins nýttir sem samtalstæki, heldur eru ökumenn að kíkja á tölvupósta, Facebook, sms og fleira, sem auðvitað býður hættunni heim við aksturinn. Mælingar hafa verið gerðar á truflunaratriðum í umferðinni og í þættinum Ég bara spyr, sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld - og hægt er að skoða hér á vef stöðvarinnar - var meðal annars rætt um hættuna við notkun síma eða að reykja undir stýri.

Þá var og sagt frá vinsælu ökunámskeiði fyrir eldri ökumenn, sem Samgöngustofa vann með Félagi eldri borgara. Það er ekkert síst fyrir góða ökumenn, en þar sem svo margt hefur breyst í umferðinni síðustu áratugi, megi ekki gleyma því að þessum hópi getur nýst vel að fara á námskeið, sem taka tillit til breyttra tíma, göturnar eru stærri, hraðinn er meiri, fleiri hjólreiðamenn og svo mætti áfram telja.

Ég bara spyr er frumsýnt öll miðvikudagskvöld á Hringbraut og endursýnt um helgar.