Umferðarslys á suðurlandsvegi – beittu klippum til að ná ökumanni út

Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi, rétt vestan við Landeyjarhafnarveg laust fyrir klukkan 11 í morgun þar sem rúta og fólksbifreið skullu saman. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Rangárvallasýslu þurftu að beita klippum til að ná ökumanni fólksbifreiðarinnar út. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Ökumaður og farþegi fólksbifreiðarinnar voru fluttir af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ekki er talið að um lífshættulega áverka sé að ræða. Bílstjóri og farþegar rútunnar sluppu án meiðsla.

Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi rannsakar tildrög slyssing og nýtur hún aðstoðar tæknideildar. Suðurlandsvegur er lokaður og verður það eitthvað áfram. Ökumönnum er bent á hjáleið um Landeyjarhafnarveg / Bakkaveg.