Það er vissara fyrir þá sem ekki hafa hugað að handfrjálsri símanotkun í bílnum að fara að gera það núna.
Sektin fyrir að tala í farsíma undir stýri áttfaldast nefnilega frá næstu mánaðamótum. Flestar aðrar sektir hækka umtalsvert á sama tíma, oft þrefalt eða fjórfalt á við það sem þær eru núna. Þá verður í fyrsta sinn hægt að sekta hjólreiðamenn fyrir að fara yfir á rauðu ljósi. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Sektin fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar undir stýri hefur verið fimm þúsund krónur frá árinu 2006. Um næstu mánaðamót hækkar sektin upp í 40 þúsund krónur, verður átta sinnum hærri.
Og sektin fyrir að vera á nagladekkjum á sumrin fjórfaldast, úr 20 þúsund krónum í 80 þúsund.
Sekt fyrir að keyra yfir á rauðu ljósi hækkar úr 15 þúsund krónum í 30 þúsund. Þá hækkar sekt fyrir að virða ekki biðskyldu eða stöðvunarskyldu úr 15 þúsund krónum í 30 þúsund. Og ný sekt bætist við - hjólreiðamenn greiða 20 þúsund krónur fyrir að aka á móti rauðu ljósi.
Hæstu sektirnar hækka líka, þó að hlutfallslega sé hækkunin ekki eins mikil. Til dæmis hækkar sekt fyrir að keyra á yfir 160 kílómetra hraða þar sem hámarksharðinn er níutíu, úr 150 þúsundum í 240 þúsund. Og hæstu sektirnar fyrir ölvunarakstur hækka úr 240 þúsundum í 320 þúsund.