Umferðin á íslandi er að taka mikinn kipp frá því sem verið hefur frá hruni en þá dróst svo verulega úr henni í einni sviphendingu að fara þurfti tvo áratugi aftur í tímann til að finna samjöfnuð. Ljóst þykir að metið frá 2007 verði slegið í ár.
Það sem af er ári hefur umferðin á Hringveginum aukist um 2,2% en það er heldur minni aukning miðað við sama tímabil á síðasta ári en þá nam aukningin 5,2%. Líkt og milli júní mánaða hefur umferð aukist mest, frá áramótum, um Austurland eða 12,1% en minnst um Suðurland eða 1,1%.
Það er svolítið athyglisvert, eins og segir á vef Vegagerðarinnar, að umferð á Hringvegi um Suðurland eykst ekki jafn mikið og á öðrum landssvæðum. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að mikið er rætt um aukningu ferðamanna um Suðurland, t.d. á Gullna Hringnum, en Hringvegurinn er hluti þeirrar leiðar. Umferðin á Hellisheiði jókst t.d. aðeins um 1,9% milli júní mánaða og hefur hún dregist saman um 0,7% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Hugsanlega er þetta vísbending um breytt leiðarval á Suðurlandi og eða umsvif á þessu landssvæði aukist hóflegar en á öðrum landssvæðum. En erfitt er að meta það nákvæmlega. Hugsanlega fer nú líka hluti umferðar um Suðurstrandaveginn sem áður fór um Hringveginn.