Löreglan í London segir að ekki sé um hryðjuverk að ræða. Málið er því rannnsakað sem umferðalsys.
Ellefu manns slösuðust og eru níu á sjúkrahúsi. Þeirra á meðal ökumaðurinn. Áverkar eru mismiklir en ekki lífshættulegir.
Ökumaðurinn fékk aðhlynningu er nú í haldi lögreglu meðan málið er rannsakað nánar. Nokkur ótti greip um sig við safnið en bílnum var ekið upp á gangstétt og á gangandi fólk og aðra bíla.
Hryðjuverk hafa verið tíð á þessu ári í borgum Stóra-Bretlands og er viðbúnaðarstig lögreglu því hátt. Ekið hefur verið á gangandi fólk af ásettu ráði og hafa margir látið lífið.