Í dag, 2. október 2015, eru fimm ár síðan Héðinsfjarðargöngin opnuðu. Af því tilefni boða Fjallabyggð og Háskólinn á Akureyri til málþings í Ólafsfirði klukkan 14 þar sem kynntar verða heildarniðurstöður sjö ára rannsóknar á samfélagsáhrifum ganganna. Lesa má nánar um þetta á http://www.unak.is/is/frettir/ahrif-hedinsfjardarganga-a-samfelogin-a-nordanverdum-trollaskaga
Í dag opnar jafnframt nýr vefur www.byggdathroun.is/hedinsfjardargong<http://www.byggdathroun.is/hedinsfjardargong þar sem forsendur, aðferðafræði og helstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins eru kynntar. Loks birtir Íslenska þjóðfélagið, tímarit Félagsfræðingafélags Íslands í dag nýja yfirlitsgrein þar sem farið er yfir helstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins.
Í greininni segir Þóroddur Bjarnason, umsjónarmaður rannsóknarinnar og prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, að niðurstöður sjö ára rannsóknar fjölmargra fræðimanna á samfélagslegum áhrifum Héðinsfjarðarganganna sýni að umferð hafi aukist umfram spár. Talsverð vinnusókn sé nú milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar og mikill meirihluti íbúanna sæki verslun, þjónustu, viðburði eða félagsstarf milli kjarnanna.
Efnahagslíf í Fjallabyggð hafi einnig eflst og aukin ánægja sé með vöruverð og fjölbreytni í verslun. Siglufjörður sé orðinn hluti ferðamannasvæðis Eyjafjarðar og áfangastaður ferðamanna milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins.
Gistingum ferðamanna hafi þó ekki fjölgað og spár um aukna umferð á hringleið um Skagafjörð og Eyjafjörð ekki gengið eftir.
Til skemmri tíma hafi fólki fjölgað á Siglufirði en ekki í Ólafsfirði. Langtímaáhrif Héðinsfjarðarganganna muni koma í ljós á næstu áratugum og mikilvægt sé að fylgja þeim eftir með skipulögðum hætti.