Umfangsmikið heilsueflingarátak í reykjavík

Reykjavíkurborg, félög og fyrirtæki hafa tekið höndum saman um umfangsmikla heilsueflingu fyrir eldra fólk í borginni.

Sérstök nefnd undir forsæti Ellerts Schram hefur tekið saman fjölda tillagna sem miða að því að auka áhuga fólks á hvers kyns hreyfingu og útivist.

Gera á hreyfikort fyrir öll hverfi borgarinnar þar sem útivistarmöguleikar og gönguleiðir eru tíundaðar, lagt til að allir frá ókeypis í sund frá 67 ára aldri eins og reyndin er í nágrannabyggðum. Líkamsræktarstöðvar vilja koma í samstarf og auka á einstaklingsmiðaða næringarfræðslu.

Í þættinum í kvöld kl. 20:00 ræðir Helgi Pétursson við Ellert Schram, Janus Guðlaugsson og Ilmi Kristjánsdóttur.