Einbýlishús við Stigahlíð 61 er til sölu á fasteignasíðum í dag. Húsið er 354,1 fermetri að stærð og er auglýst kaupverð 110 milljónir króna enda má húsið muna sinn fífil fegurri og þarfnast endurbóta. Í auglýsingunni er tekið fram að húsið hafi verið í herbergjaleigu og að telja megi 13 leigueiningar í húsinu.
Eigandi hússins er fyrirtækið Karl Mikli ehf. en eigendur félagsins eru fjórir og eiga þeir allir 25% hlut í gegnum eignarhaldsfélög sín. Eigendurnir eru Gísli Hauksson, einn af stofnendum GAMMA, Arnar Hauksson bróðir Gísla, Haukur Halldórsson og Pétur Árni Jónsson.
Á árum áður leigði Reykjavíkurborg húsið sem athvarf fyrir hælisleitendur en um tíma voru allt að tuttugu einstaklingar búsettir í húsinu. DV fjallaði um leigusamninginn í nóvember 2018 á þeim forsendum að hann væri afar óhagstæður fyrir borgina.

Gísli Hauksson
Eigendurnir keyptu fasteigna á 76 milljónir króna undir lok árs 2015 en á þremur árum fengu þeir 47 milljónir króna í leigutekjur frá Reykjavíkurborg. Ástæðan var sú að samningurinn er neyðarúrræði því alvarlegt ástand hafði skapast varðandi húsnæði fyrir hælisleitendur í höfuðborginni.
Í umfjöllun DV á sínum tíma er því haldið fram að neyðarástandið hafi skapast því leigufélag í eigu GAMMA hafði sagt upp leigusamningum á húsnæði sem Reykjavíkurborg hafði leigt af þeim fyrir hælisleitendur.
Er því haldið fram að eigendum Karls Mikla ehf. hafi verið fullkunnugt um ástandið og boðið fram rándýra lausn á því.