Umdeildur íslendingur með marilyn

Sirrý heimsækir einn umdeildasta Íslending samtímans í þættinum Bankað uppá, sem nú er sýndur á laugardagskvöldum klukkan 21.00 á Hringbraut. Sirrý vill ekki gefa neitt meira upp um þáttinn, enda vinsælt hjá áhorfendum að reyna að giska á íbúa heimilisins, áður en það er opinberað í lok þáttar. Sirrý segir að stundum fái hún jafnvel SMS skilaboð frá fólki, til sönnunar um að það hafi verið með rétt svar, áður en viðkomandi er opinberaður. Í kvöld er það Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, sem er gestur Sirrýar. Það kemur því í hans hlut, að reyna að finna út, hver býr í húsinu. Flestir þekkja Svavar sem fyrrum fréttamann hjá RÚV en í kvöld kemur það í ljós, hvort hið margreynda fréttanef kappans, kemur að góðum notum.

Það litla sem er hægt að rýna í fyrir þáttinn, er að sá sem býr í íbúðinni, er greinilega aðdáandi Marilyn Monroe. Hér má sjá sýnishorn úr þættinum, kannski að einhverjir kveiki á perunni strax? Bankað uppá kl.21.00 í kvöld á Hringbraut.