Skiptar skoðanir eru meðal landsmanna um þann „brandara“ sem Sigmundur Davíð sagði á snapchat í gær eftir að hann sótti flóttamannabúðir í Shatila í Líbanon.
Magnea Marínósdóttir, fyrrverandi friðargæsluliði sem áður starfaði hjá utanríkisráðuneytinu, er afdráttarlaus þegar hún deilir frétt Stundarinnar sem fjallaði fyrst um málið. Magnea segir á facebook: „Tók á móti flóttafólki á Keflavíkurflugvelli. Fór í flóttamannabúðir í Líbanon....búinn að tapa öllum punktunum sem hann fékk. Kominn í mínus. Asni.“
Svala Jónsdóttir, kennari og blaðamaður, skrifar: „Þegar milljónamæringur fer að skoða slæmar aðstæður flóttafólks, og finnst þær fyndnar...“
Þó hafa aðrir bent á að kannski hafi forsætisráðherra ekki verið að gera gys að raflögnunum þegar hann birti í gærmorgun: „Lofaði að skila því að það vantar rafvirkja í Shatila.“Það skrifaði forsætisráðherra eftir að hafa séð rafmagnslínur og víra hanga milli húsa, sums staðar í höfuðhæð fólks. Deyja margir vegna raflosts víranna á þessum slóðum.
Einn þeirra sem kemur Sigmundi Davíð til varnar er Egill Helgason fjölmiðlamaður. Hann skrifar á bloggi sínu í eyjan.is um ferð Sigmundar og myndina: „Umræðan hefur að miklu leyti snúist um að nú sé allsendis ósmekklegt hjá honum að láta mynda sig með flóttamönnum, hvað hann sé að vilja með það, miðaldra karlinn, og í stað þess að greina hvaða pólitík kann að felast í ferð forsætisráðherrans til Mið-Austurlanda ganga yfir vandlætingarbylgjur vegna myndar sem hann birti af raflínum á Snapchat.
Kannski var hún ekki voða fyndin, en samt, fyrr má nú vera hneykslunargirndin.
Getur verið að felist einhver skilaboð í því að Sigmundur Davíð tekur á móti flóttamönnum á Keflavíkurflugvelli og fer til Líbanon, umfram það að fara í taugarnar á þeim sem þola hann ekki?“