Umdeildir milljarðar

Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra, Silja Dögg Gunnarsdóttir í fjárlaganefnd fyrir Framsókn og Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar  mæta til Lindu Blöndal á Þjóðbraut í kvöld og ræða fjárlagafrumvarpið 2018.

Umræða um frumvarpið hófst á Alþingi í dag.

Gert er ráð fyrir 44 milljarða afgangi af rekstri ríkissjóðs á næsta ári. Fimmta árið í röð er lagt fram fjárlagafrumvarp þar sem gert er ráð fyrir hallalausum ríkisrekstri. Á næsta ári er áætlað að tekj­ur rík­is­sjóðs verði rúmlega 820 millj­arðar og gjöld verði 717 millj­arðar. Til viðbót­ar verði vaxta­gjöld upp á 73 millj­arða og vaxta­tekj­ur upp á 12 millj­arða.

Pawel segir frumvarpið vel gert að því leyti að það undirbúi efnahagslífið undir magrari ár enda sé verið að greiða greitt niður skuldir. Samt sé þó verið að auka verulega greiðslur til öryrkja og aldraðra. Steingrímur gagnrýnir að ríkisstjórnin hafi aflagt stöðuga tekjupósta, svo sem auðlegðarskatt. Ríkisstjórnin  hefði getað aflað meiri tekna og nýtt til meiri framlaga, og nefnir sérstaklega samgöngubætur. “Skuldin liggur í samgöngumálum þegar vegir um landið drabbast niður eða hreinlega eyðileggjast”, segir Steingrímur og að það séu skuldirnar sem eigi að greiða niður en ekki bara þær sem finnist í bókhaldstölum.

Silja Dögg benti á að framlög til heilsugæslunnar væru of lág og vitnaði í orð yfirmanns heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu um að frumvarpið væru gríðarleg vonbrigði. Miðað við það verði ekki hægt að standa við á stefnu að gera heilsugæsluna almennt að fyrsta viðkomustað sjúklinga. 

Pawel og Steingrímur ræddu um tekjustofna sem Steingrímur segir ríkisstjórnina hafa óréttilega afsalað sér.

Þjóðbraut er frumsýnd í kvöld, fimmtudag Kl.21.