Deilt á hlutverk ríkisins

Helstu fréttir og pólitík á þjóðbraut á fimmtudegi.

Eygló harðardóttir þingmaður Framsóknar, Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, frá Bjartri framtíð sem situr í meirihluta stjórn í bænum með Sjálfstæðifslokki og Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar mæta í Þjóðbraut í kvöld. Guðlaug er einnig fyrrverandi formaður BHM.

Eygló, fyrrverandi félagsmálaráðherra og Guðlaug nefndu að ríkið hefði mikilvægu hlutverki að gegna við gerð kjarasamninga. Því hlutverki sé ekki sinnt af núverandi stjórn. Pawel, samflokksmaður sjávarútvegsráðherra ítrekaði að ríkið ætti ekki að koma nálægt vinnumarkaðsdeilum einkaaðila.