Umdeild þingveisla - frír ferðakostnaður


Boðað hefur verið til þingveislu nk. fimmtudag. Öllum þingmönnum og mökum ásamt þeim varamönnum sem tekið hafa sæti á þingi í vetur er boðið. Að venju mun forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson, sitja veisluna ásamt formönnum stjórnmálaflokka.
\"Það verður gaman að sjá þátttökuna í veislunni, hverjir muni vilja heiðra alla Panamakallana með nærveru sinni,\" segir einn þeirra sem fengið hefur boðsbréf frá Alþingi í veisluna í samtali við Hringbraut og telur að gestalistinn, það er viðvist þeirra sem muni mæta, verði ákveðinn prófsteinn á heilindi þingmanna og varamanna þeirra vegna aflandsmála. Þannig sé umræðan innan þingsins núna.
Frestur til að tilkynna þátttöku í veisluna sem verður haldin á Hótel Sögu rennur út á mánudag. Ekki mun veislan einungis fara fram í skugga spillingarmála heldur vekja kjörin einnig athygli. Aðeins 5000 krónur kostar að þiggja veislukvöldverðinn og kemur fram í veisluboðinu að Alþingi muni greiða ferðastyrk fyrir þá sem koma utan af landi. Miðað við veitingar er væntanlega vandfundin ódýrari kvöldskemmtan en óvíst er þó að allir muni skemmta sér vel. Dræm þátttaka var í síðustu þingveislu, sem endaði raunar þannig að hún leystist upp vegna mórals og óánægju.
 \"Hver alþingismaður, sem þekkist boðið, greiðir 5000 kr.; það gjald verður tekið af launareikningi hans við næstu útborgun. Varamenn þurfa einnig að greiða 5000 kr og leggja inn á bankareikning Alþingis ... Ath. Alþingi greiðir ferðakostnað fyrir þá sem koma utan að landi,\" segir í boðinu til þingmanna sem Hringbraut hefur undir höndum.