Umdeild en áhrifamikil

Katrín kynntist kenningum sósíalisma á námsrárum sínum og er og verður þeim kenningum trygg alla sína stjórnmálatíð.

Björn Valur Gíslason fv. varaformaður flokks VG skrifar um vinsældir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.

\"Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur nýtur mikils almenns stuðnings meðal þjóðarinnar eins og komið hefur fram í könnunum,\" 

Máli sínu til stuðnings vísar Björn Valur í könnun á www.mmr.is og könnun á www.mbl.is

\"Margir hafa líka miklar væntingar til ríkisstjórnarinnar sem hún á eftir að standa undir enda aðeins örfáir dagar frá því hún tók við völdum.\"

Björn Valur rifjar þessu næst upp óþægilegt mál.

\"Þessar vinsældir eru ekki til komnar vegna þess að að Sigríður Á. Andersen er dómsmálaráðherra.\"

Bjönr Valur bætir um betur.

\"Eða vegna þess að Bjarni Benediktsson hafi mikið traust meðal kjósenda. Heldur betur ekki.\"

\"Vinsældirnar má heldur ekki rekja til fyrstu fjárlaga ríkisstjórnarinnar eða aðgerða hennar almennt á þeim fáum dögum sem hún hefur starfað.\"

\"Langt frá því.\"

\"Vinsældir ríkisstjórnarinnar stafa mest af því að almenningur treystir því að hún muni tryggja stöðugt stjórnarfar eftir róstur undafarinna ára og að undir forystu VG muni almenn velferð í landinu aukast frá því sem verið hefur.\"

[email protected]