Átta Veiði- og stangveiðifélög við Eyjafjörð mótmæla harðlega áætlun Arnarlax á Bíldudal um framleiðslu á tíu þúsund tonnum af frjóum eldislaxi af norsku kyni í Eyjafirði.
Arnarlax birti nýlega tillögu um sjókvíaeldis í firðinum. Nái hún fram að ganga gætu orðið að jafnaði fimm milljónir frjórra laxa í sjókvíum í Eyjafirði.
Frá þessu segir á vef Bæjarins besta.
Augljós hætta stafar af slíku eldi fyrir veiðiár í Eyjafirði sem og náttúruna í heild, segir í tilkynningu félaganna.
Einn lax sleppi fyrir hvert tonn af laxi sem framleitt er og þannig munu um 10 þúsund laxar sleppa úr kvíum Arnarlax í Eyjafirði á hverju ári. Það er tíu til tuttugufalt fleiri laxar en ganga í Fnjóská á hverju ári og segir að laxastofninn í ánni muni engan vegin þola slíkt álag.
Laxeldi er í miklum vexti núna á Íslandi. Framleiðsluaukning undanfarin 6 ár hefur verið drifin áfram af uppbyggingu sjókvíaeldisins á sunnanverðum Vestfjörðum en framleiðsla er nú einnig hafin aftur í Berufirði og er í undirbúningi í Reyðarfirði, Ísafjarðadjúpi, Jökulfjörðum og Eyjafirði. Þá hefur lax verið alinn í landsstöðvum á norðurlandi og á Suðurnesjum um árabil. Einungis er heimilt að ala laxfiska í sjóvkíum á Vestjörðum, Austfjörðum og í Eyjafirði og er sú ráðstöfun sett til verndar villtum laxastofnum, komi til óhappa eða slysasleppinga.
Stærstu framleiðendurnir 2016 eru Arnarlax og Fiskeldi Austfjarða í sjókvíaeldinu og Íslandsbleikja í landeldi, samkvæmt upplýsingum á vef Landssambands fiskeldisstöðva.