Haft er eftir fastafulltrúa Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum Nikki Haley að þessarar atkvæðagreiðslu ætti að minnast sem árásar á Bandaríkin.
Allsherjarþingið hefði gert árás á ákvörðunarrétt Bandaríkjanna til að segja Jerúsalem vera höfuðborg Ísraels.
Stjórnmálaskýrendur vilja ekki gera mikið úr gífurmælum forseta Bandaríkjanna og ókvæðisorðum fastafulltrúa Bandaríjanna hjá Sameinuðu þjóðunum.
Þeir minna á að árið 2018 er kosningaár í Bandaríkjnum og fjölmennir og pólitískir hvítasunnusöfnuðir um öll Bandaríkin styðja Ísraelsríki með ráðum og dáð.
Þessir fjársterku og skipulögðu söfnuðir er langflestir hallir undir Repúlíkanaflokk Donald J Trum forseta Bandaríkjanna.
Flokkurinn þarf aura þeirra og atkvæði.
Ísland studdi ályktun Sþ. gegn ákvörðun Bandaríkjanna.
Hæpið er að Bandaríkin gerir annað í þessu máli að láta embættismönnum eftir að slá vindhögg og hafi uppi málæði á mannamótum.