Umbúðir minnka matarsóun

Almenningur krefst breytinga hvað varðar matarumbúðir og plast og kallar á minni matarsóun. Matvælafyrirtæki, verslanir og almenningur eru þeir sem helst bera ábyrgðina.

Bryndís Skúladóttir forstöðumaður framleiðslu- og matvælasviðs hjá Samtökum iðnaðarins bendir á að nýbirt gögn frá Hagstofunni sýni að á tímabilinu 2012-2014 hafi 60 prósent matvælafyrirtækja stundað nýsköpun sem á einhvern mátta bar umhverfislegan ávinning fyrir fyrirtækin sjálf,. Ennfremur að 25 prósent fyrirtækja stunduðu nýsköpun sem hafði sérstaklegan umhverfislegan ávinning fyrir neytendur. Matvæli eiga í sérstöku sambandi við umbúðir. 

Mestu skipti minni efnis- og vatnsnotkun, minni orkunotkun og aukin endurvinnsla.

Árlegur matvæladagur Matvæla og næringafélags Íslands er haldinn í dag. Bryndís heldur þar erindi um þetta málefni og greinir nánar frá þróuninni á Þjóðbraut í kvöld.