Umboðsmaður fengið 2,4 milljarða

Samkvæmt upplýsingum frá Umboðmanni skuldara, hafa bankar, Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðir greitt um 2,4 milljarða króna í rekstur embættisins frá árinu 2013, að því er fram kemur á upplýsingaveitunni spyr.is.


Framlagið sem greitt er, byggir á lögum sem sett voru árið 2010 og kveða á um sérstök gjöld sem fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum er gert að greiða til rekstursins. Í lögum segir að álagningarstofn þessi byggi á útlánum viðkomandi fjármálafyrirtækisins fyrir almanaksárið á undan. Samkvæmt sundurliðun Umboðsmanns skuldara greiddu umræddir aðilar 1192 milljónir til embættisins árið 2013, 738,5 milljónir árið 2014 og munu greiða 493,9 miljónir til embættisins í ár.


Samkvæmt lögum sem sett voru um starfsemi Umboðsmanns skuldara, sem komið var á fót fljótlega eftir hrun eiga fjármálafyrirtæki, Íbúðaalánasjóður, lífeyrissjóðir og vátryggingafélög að standa straum af kostnaði við rekstur umboðsmann skuldara með greiðslu sértaks gjalds. 


 


 


Nánar er hægt að skoða málið á spyr.is.