Umboðsmaður Alþingis sendi Lilju D. Alfreðsdóttur menntamálaráðherra bréf árið 2018 þar sem hann gerði athugasemdir við þær ítrekuðu tafir á því ráðuneytið svaraði fyrirspurnum umboðsmanns Alþingis. Stundin greinir frá þessu.
Alls voru 11 mál þar sem umboðsmaður Alþingis beið eftir svörum. Einnig bárust umboðsmanni kvartanir vegna tafa og ófullnægjandi svara frá menntamálaráðuneytinu.
„Ég ítrekaði síðan með yfirliti sem ég sendi ráðherra í september 2018 að enn skorti á að svör bærust frá mennta- og menningarmála-ráðuneytinu. Samhliða þessum upplýsingum sem ég sendi til ráðuneytisins á́ árinu átti ég samtöl við ráðherra um úrbætur á starfsháttum ráðuneytisins að þessu leyti,“ segir umboðsmaður Alþingis.
Í apríl 2019 óskaði menntamálaráðherra eftir fundi með umboðsmanni Alþingis vegna þessara mála. Að sögn menntamálaráðuneytisins eru ástæður þessara tafa á málum vegna mikilla anna og manneklu. Ráðuneytið segist hafa brugðist við stöðunni, meðal annars með ráðningu nýrra starfsmanna.
„Til þess að umboðsmaður geti rækt lögbundið eftirlitshlutverk sitt þurfa stjórnvöld að sinna þeirri lagaskyldu sinni að láta honum í té nauðsynlegar upplýsingar, skýringar og gögn þegar eftir því er leitað og þeir sem í hlut eiga fái leyst úr málum sínum eins fljótt og mögulegt er,“ segir umboðsmaður Alþingis.