Umboðsmaður alþingis er blankur

Engin frumkvæðisathugun hefur farið fram hjá Umboðsmanni Alþingis í ár samkvæmt frétt Fréttablaðsins um málið í dag. Í nýrri ársskýrslu embættisins segir að það sé einfaldlega vegna fjárskorts; embættið hafi ekki efni á slíku lengur.

\"Ég tel þessa stöðu ekki ásættanlega miðað við núgildandi lög sem og þær ábendingar sem ég fæ og þær upplýsingar sem koma fram við athuganir á kvörtunum. Þá hefur heldur ekki gefist tækifæri til að ljúka sem skyldi eldri frumkvæðismálum og kvörtunum sem áformað hefur verið að ljúka í tengslum við þau,“ er haft eftir Tryggva Gunnarssyni, umboðsmanni Alþingis í skýrslunni sem Fréttablaðið vitnar til.

Kunnasta frumkvæðisrannsókn sem umboðsmaður hefur sinnt á síðustu misserum er lekamálið svokallaða, sem leiddi að lokum til afsagnar Hönnu Birni Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra.

Frumkvæðisathuganir eru verkfæri umboðsmanns til að hafa eftirlit með stjórnvöldum án þess að kvörtun berist embættinu fyrst. Oftar en ekki er vísað til fjölmiðlaumfjöllunar þegar frumkvæðisathugun hefst.