Umbætur samþykktar með miklum meirihluta

Gríska þingið samþykkti í nótt seinni hluta þeirra tillagna sem ríkið þarf að innleiða svo hægt sé að opna fyrir neyðarlán frá lánardrottnum Grikklands og koma í veg fyrir fjárhagshaglegt hrun landsins. 

Umbæturnar voru samþykktar með miklum meirihluta, eða 230 atkvæðum gegn 63. Fimm þingmenn sátu hjá. 

Lagabreytingarnar voru skilyrði fyrir því að gengið verði til samninga um þriðja björgunarpakkann handa gríska ríkinu. Þær innihalda meðal annars ákvæði um upptöku á innistæðutryggingu á innlánsreikningum, afnám ríkisábyrgðar á viðskiptabönkum og breytingar á dómskerfinu sem heimila skjótari dómsmeðferðir. 

Alexis Tipras, forsætisráðherra Grikklands hlaut mun meiri stuðning í nótt en gert var ráð fyrir. 31 þingmenn stjórnarflokksins kusu gegn til­lög­um ríkisstjórnarinnar, en það eru færri þingmenn en kusu gegn tillögunum í síðustu viku. Yan­is Varoufa­k­is, fyrr­ver­andi fjár­málaráðherra lands­ins kaus með til­lög­um rík­is­stjórn­ar­inn­ar eft­ir að hafa kosið gegn þeim í síðustu viku.

Tipras hefur nú fullt umboð frá gríska þinginu til að hefja viðræður við lánardrottna um nærri 90 milljarða evra neyðarlán til bjargar grískum efnahag.