Um 63% stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum sjá fram á samdrátt í íslensku hagkerfi á næstu 12 mánuðum. Þar af sjá 11% þeirra fram á að hagkerfið dragist mikið saman en 52% þeirra að hagkerfið muni dragast lítillega saman. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá MMR.
Stjórnendur voru talsvert svartsýnni á efnahag landsins og horfur í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja/stofnana nú heldur en við síðustu mælingu MMR frá því í febrúar 2017. Hlutfall stjórnenda sem sáu fram á aukna eftirspurn á vöru/þjónustu á næstu 12 mánuðum lækkaði um tæp 38 prósentustig milli mælinga en 32% stjórnenda sáu nú fram á aukna eftirspurn samanborið við 70% í síðustu mælingu.
Hlutfall stjórnenda sem sáu fram á aukna veltu á næstu 12 mánuðum lækkaði um rúm 30 prósentustig milli mælinga og hlutfall þeirra sem sáu fram á aukna arðsemi lækkaði um 24 prósentustig. Stór hluti stjórnenda eða 69% bjóst við að launakostnaður myndi aukast á næstu 12 mánuðum. Þá sáu 30% stjórnenda fram á fækkun starfsmanna.