Um lykilhlutverk stjórnvalda

Formaður SI flutti ávarp á fundi SI með forsystufólki stjórnmálanna. Hún rifjaði upp að stjórnvöld gegna lykilhlutverki í því að skapa þannig umhverfi að á Íslandi megi iðnaður og atvinnuvegir allir starfa við sambærileg skilyrði og ríkja í þeim löndum sem Ísland á í samkeppni við.

Nú ganga Íslendingar að kjörborðinu sagði Guðrún en ekki hefur tekist að skapa hér stöðugleika sem bæði heimilin og atvinnulífið þurfa svo sannarlega á að halda. 

Næstkomandi laugardag sagði Guðrún eru Íslendingar að kjósa fólk og flokka sem þeir treysta best til að skapa hér viðundandi starfsumhverfi næstu árin.

Verið er að kjósa um samkeppnishæfni sem er forsenda góðs lífs hjá öllum landsmönnum sagði Guðrún.

Frambjóðendur allra flokka verða að taka tilit til helstu málefna atvinnulífsins til að hér megi íslenskt atvinnulíf eflast og dafna.

Guðrún sagði: \"Við viljum að frambjóðendur setji okkar málefni í forgunn í starfi sínu sem framundan er.\" 

Íslendingar sagði hún vilja að þeir sem veljast til ábyrgðarstarfa hafi hagsmuni atvinnulífsins að leiðarljósi og þar með hagsmuni landsmanna allra.

 

[email protected]