Um hvað verður kosið?
Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) ræðir þessa spurningu í nýju fréttabréfi SAF.
Helga rifjar upp vægi ferðaþjónustunnar í hagkerfinu.
Um 40 til 50 prósent af hagvextinum má rekja beint eða óbeint til ferðaþjónustunnar.
Um 40 prósent af öllum útflutningi Íslands er útflutningur á ferðaþjónustu.
Í þessu ljósi mætti ætla skrifar Helga að megináherslur stjórnmálaflokkanna séu þær að tryggja stöðu ferðaþjónustunnar til framtíðar.
Ekki um frekari gjaldheimtu af ferðaþjónustunni.
Yfirveguð umræða um málefni ferðaþjónustunnar - þar sem frambjóðendur koma fram af ábyrgð og þekkingu í umfjöllun sinni um greinina - mun nýtast vel þeim tuttugu og fimm þúsund starfsmönnum í íslensku ferðaþjónustunni sem munu ganga að kjörborðinu í lok næsta mánaðar skrifar Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri SAF.