Um 48 prósent Íslendinga vill hefta sölu flugelda að einhverju leyti; 28 prósent sem myndu vilja leyfa sölu til aðila með flugeldasýningar og 20 prósent sem myndu vilja leyfa sölu með takmörkuðu magni. Á bilinu 45-46 prósent vilja halda óbreyttu fyrirkomulagi og tæplega 7 prósent vilja banna flugelda alfarið. Þetta eru helstu niðurstöður könnunar sem Maskína gerði á viðhorfum Íslendinga til flugeldasölu.
Könnunin fór fram dagana 14. – 28. desember og svarendur voru 817 talsins.
Í könnuninni kemur fram að karlar vilji fremur hafa óbreytt fyrirkomulag (53,3 prósent) en konur (37,3 prósent). Konur eru hlynntari því að leyfa sölu eingöngu til flugeldasýninga (33,8 prósent) en karlar (22,6 prósent). Fólk á aldursbilinu 40-49 ára er líklegast til þess að vilja óbreytt fyrirkomulag á sölu flugelda.
Töluverður munur er á viðhorfi til sölu flugelda eftir menntun fólks. Þar sést að um 55 prósent þeirra sem hafa ekki lokið háskólaprófi vilja óbreytt fyrirkomulag samanborið við 35-36% þeirra sem hafa lokið háskólaprófi.
Þá eru kjósendur Pírata líklegastir til þess að vilja banna flugelda alfarið (18-19 prósent) en kjósendur Flokk fólksins ólíklegastir (0 prósent). Þá er töluverður munur á viðhorfi til óbreytts fyrirkomulags. Á bilinu 64-65 prósent þeirra sem myndu kjósa Miðflokkinn vilja óbreytt fyrirkomulag, en á bilinu 31-32 prósent þeirra sem myndu kjósa Viðreisn hafa þá skoðun, sem dæmi.
Könnunina í heild sinni er að finna á heimasíðu Maskínu.