Nær helmingur landsmanna, eða um 46%, kveðst ætla að gæða sér á hamborgarhrygg á aðfangadag. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR þar sem Íslendingar voru spurðir hvað þeir munu borða á aðfangadag.
Næst vinsælasti jólamatur landsmanna var lambakjöt ,annað en hangikjöt, en 9% sögðust gæða sér á því á aðfangadag. Áhugi á grænmetisfæði hefur aukist frá því að mælingar MMR á matarvenjum á aðfangadag hófust árið 2010 en 4% allra svarenda og 9% þeirra á aldrinum 18-29 ára hyggjast gæða sér á grænmetisfæði á aðfangadag þetta árið.
Stuðningsfólk Miðflokksins, eða 58%, reyndist líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast ætla að gæða sér á hamborgarhrygg á aðfangadag en stuðningsfólk Vinstri grænna , eða 31%, ólíklegast. Könnunin var framkvæmd dagana 13. til 19. desember 2019 og var heildarfjöldi svarenda 1.014 einstaklingar, 18 ára og eldri.