Það kemur líklega fáum á óvart að Facebook sé vinsælasti samfélagsmiðillinn á Íslandi í dag en 92% landsmanna segjast nota miðilinn reglulega. Þá kváðust 64% landsmanna nota Snapchat reglulega, 61% Youtube, 51% Spotify og 50% Instagram en 2% sögðust ekki nota neina samfélagsmiðla reglulega. Þetta kemur fram í könnun á vegum MMR.
Snapchat og Instagram voru nokkuð vinsælli hjá konum, 72% Snapchat og 58% Instagram, heldur en körlum, 57% Snapchat og 42% Instagram, en Youtube virtist höfða nokkuð betur til karla heldur en kvenna, 67% á móti 55%.
Yfir 90% svarenda á aldrinum 18-67 ára og 79% þeirra 68 ára og eldri kváðust nota Facebook reglulega. Regluleg notkun Snapchat, YouTube, Spotify og Instagram fór minnkandi með auknum aldri.
Af stuðningsfólki Flokks fólksins kváðust 98% nota Facebook reglulega en einungis 21% þeirra kváðust nota Spotify reglulega. 72% Stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins reyndist hvað líklegast til að nota Snapchat reglulega og 69% stuðningsfólk Framsóknar, 69% Pírata og 67% Miðflokksins reyndist líklegast til að nota Youtube reglulega. Af stuðningsfólki Viðreisnar kváðust 69% nota Spotify reglulega og 61% stuðningsfólks Pírata sögðust reglulegir notendur Instagram.