Síðastliðinn föstudag fengu um 80 starfsmenn endurskoðunarfyrirtækisins KPMG niðurgangspest, daginn fyrir árshátíð fyrirtækisins.
Í samtali við Fréttablaðið staðfesti Andrés Guðmundsson starfsmannastjóri KPMG málið og segir að búið sé að tilkynna það til Embætti landlæknis.
„Fólk var að veikjast í sirka átta tíma og svo var það búið. Við finnum í raun enga skýringu á þessu en þetta var að smitast mjög hratt milli manna en það er ekki hægt að rekja það í eitt né neitt,“ segir Andrés en um 290 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur rannsakar málið en engin skýring hefur enn fundist.