Um 50 manns taka líf sitt á ári

Hugarafl og Lifa, samtök aðstandenda eftir sjálfsvíg hafa stofnað nýtt félag að írskri fyrirmynd sem á bjóða upp á meðferðarúrræði fyrir fólk í sjálfsvígshugleiðingum, en írska félagið, sem rekið er með frjálsum framlögum, hefur opnað mjög umræðuna um sjálfsvíg á Írlandi.

Þetta kom fram í Fréttablaðinu í gærdag, en þar er rætt við konu, sem reynt hefur sjálfsvíg sem segir að spítalavist og lyf leysi ekki vanda þeirra sem íhuga að taka líf sitt, mikilvægt sé að bjóða upp á samtal í heimilislegu umhverfi í anda írska félagsins án þess að vandi fólks sé eilíflega sjúklingavæddur.

Sjálfsvígstíðni á Íslandi er með þeim hærri í heiminum. Árið 2014 frömdu 49 manns sjálfsvíg á Íslandi, en talið er að 200 til 300 reyni sjálfsvíg eða að skaða sig í hverjum mánuði hér á landi.

Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls segir í Fréttablaðinu í gær að aðstandendur átaksins vilji helst opna aðstöðu af þessu tagi í dag, en fyrst sé að huga að fjármögnun: \"Ég hef unnið í geðgiranum í rúm tuttugu ár og við erum ekki að gera nógu vel í þessum málaflokki. Það er bara staðreynd,\" segir hún við blaðið.

Sigrún Halla Bragadóttir, sem lögð var fyrst inn eftir sjálfsvígstilraun þegar hún var 22 ára og hefur alls lagst fjórum sinnum inn á geðdeild segir írsku aðferðina mun manneskjulegri en hefðbundna sjúklingavæðingu: \"Ég var fullviss um að ég væri bara aumingi. En í raun er fólk sem reynir sjálfsvíg bara venjulegt fólk að ganga í gegnum tilfinningalega krísu,\" segir hún í blaðinu í gær.